Persónuvernd
Síðast uppfært: september 2026
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Þegar þú sendir inn beiðni um tilboð á traustpay.is tökum við við nafni, nafni og kennitölu fyrirtækis eða félags, netfangi, símanúmeri, tegund rekstrar og þeim skilaboðum sem þú kýst að senda okkur.
Í hvaða tilgangi?
Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að hafa samband við þig, útbúa tilboð og, ef til samnings kemur, setja upp þjónustuna. Beiðnir berast okkur í gegnum þjónustuna Formspree. Við seljum ekki eða deilum upplýsingunum með þriðja aðila í markaðslegum tilgangi.
Geymsla og öryggi
Beiðnir eru geymdar eins lengi og þörf er á til að afgreiða erindið og að hámarki í samræmi við lög um persónuvernd og bókhald. Vefurinn er hýstur á öruggum netþjónum með dulkóðaðri tengingu (HTTPS).
Vefkökur
Vefurinn notar Google Analytics og Meta Pixel til að mæla heimsóknir og árangur auglýsinga. Þessi tól setja vefkökur og skrá m.a. hvaða síður eru skoðaðar og hvort tilboðsbeiðni var send. Þegar beiðni er send er netfang og símanúmer dulkóðað (hassað) í vafranum áður en það er sent Google og Meta, til að tengja beiðnina við auglýsingu. Þú getur lokað á vefkökur í stillingum vafrans.
Þinn réttur
Þú getur hvenær sem er óskað eftir aðgangi að, leiðréttingu á eða eyðingu þeirra upplýsinga sem við höfum um þig. Sendu okkur línu á traust@traustpay.is.